Herjólfur siglir fyrri ferð sína til Þorlákshafnar í dag. Ölduhæð í Landeyjahöfn hefur ekki lækkað eins og vonir stóðu til um og aðstæður í Landeyjahöfn enn erfiðar. Af þeim sökum hefur verið ákveðið að sigla Herjólfi til Þorlákshafnar.
Brottför verður frá Vestmannaeyjum kl. 09:00 og brottför verður frá Þorlákshöfn kl 12:15.
Varðandi seinni ferð Herjólfs þriðjudags þá verður gefin út tilkynning um það í hádeginu í dag, segir í tilkynningu.