Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 12,6 milljörðum króna í janúar 2012 samanborið við 9 milljarða í janúar 2011. Aflaverðmæti hefur því aukist um 3,6 milljarða eða 40% á milli ára. Þetta kemur fram í tölum Hagstofu Íslands.
Aflaverðmæti botnfisks var 7,4 milljarðar og jókst um 32,5% frá janúar í fyrra þegar aflaverðmætið nam 5,6 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 4,2 milljarðar og jókst um 29,2% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 1,4 milljörðum og jókst um 64,6% en verðmæti karfaaflans nam 915 milljónum, sem er 37,9% aukning frá janúar 2011. Verðmæti ufsaaflans jókst um 48% milli ára og nam 465 milljónum í janúar 2012.
Verðmæti uppsjávarafla nam um 4,5 milljörðum króna í janúar 2012, sem er um 48,7% aukning frá fyrra ári. Sú aukning skýrist af loðnuafla að verðmæti 4,4 milljarðar króna samanborið við 2,5 milljarða í janúar 2011. Aflaverðmæti flatfisksafla nam 594 milljónum, sem er 71,6% aukning frá janúar 2011.
Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 8,1 milljarði króna í janúar og jókst um 43,4% miðað við janúar 2011. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 24,2% milli ára og var ríflega 1,8 milljarðar í janúar 2012. Aflaverðmæti sjófrystingar nam tæpum 2,3 milljörðum í janúar og jókst um 24,2% milli ára en verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 443 milljónum, sem er 39,4% aukning frá janúar 2011.