Bein útsending verður á mbl.is frá Landsdómi klukkan 14 í dag en Landsdómur kemur saman klukkan 14 í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu.
Þar mun Markús Sigurbjörnsson dómsforseti lesa dóminn yfir Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, upp í heyranda hljóði. Á mbl.is verður ítarlega fjallað um dóminn og rætt við Geir H. Haarde og fleiri vegna dómsins í dag.