Kringlan og Smáralind halda sínu striki

Kringlan og Smáralind munu ekki breyta opnunartímum sínum vegna óska formanns VR sem hann setti fram í opnu bréfi í Morgunblaðinu í dag. Verslunarmiðstöðvarnar hafa verið opnar á þessum degi undanfarin 8 ár hið minnsta og eru jafnan mjög vel sóttar af viðskiptavinum 1. maí. Í fyrra var þó lokað þar sem 1. maí kom upp á sunnudegi.

„Kringlan hefur ákveðið að hún verði opin fyrir viðskiptavinum þennan dag, en kaupmönnum er ekki skylt að hafa opið, þeim er það í sjálfsvald sett," segir Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri Kringlunnar. Eigendur Kringlunnar telja sig fara ásættanlegan milliveg með því að ákveða að hafa húsið opið, en það sé hverri verslun í sjálfsvald sett hvort lokað verði þennan dag. Aðspurður segist hann allt eins eiga von á því að sumar verslanir verði lokaðar, en fjölmargar muni jafnframt hafa opið. En er ástæða til þess að hafa opið 1. maí? 

Fólk nýtir frídaga til að versla

„Þetta er frídagur og fólk nýtir oft sitt frí til þess að gera eitthvað sem það hefur ekki tíma til að gera á öðrum dögum. Þannig að svarið er já, ég geri ráð fyrir að hér verð talsvert af fólki að versla," segir Sigurjón. Svipaða sögu segir Sturla Gunnar Eðvarðsson, framkvæmdastjóri Smáralindar. „Viðtökur viðskiptavina eru mjög góðar á þessum degi og gestafjöldi mun meiri en aðra daga,“ segir Sturla.

Hann bætir því við að sér finnist sérkennilegt af formanni VR að beina spjótum sínum að Kringlunni og Smáralind, nær væri að tala til allra verslunareigenda í landinu. „Síðan er Smáralind ekki verslun í þeim skilningi. Við erum verslunarmiðstöð sem leigjum út rými til kaupmanna,“ segir Sturla. Í Smáralind er það þó ekki undir hverri og einni verslun komið hvort opið verður, opið verður í öllu húsinu.

Aðspurðir hvort kvartanir hafi borist vegna opnunar 1. maí segist Sturla ekki vita til þess að verslunareigendur né starfsfólk hafi kvartað. „Ég hef ekki heyrt það.“ Sigurjón segir hinsvegar að það opnunartímar séu oft umdeildir. „Við náttúrulega verðum vör við skiptar skoðanir á opnunartíma Kringlunnar almennt og þessi dagur er ekki undanskilinn því. Þetta er stórt hús og menn hafa misjafnar skoðanir bæði á lengd opnunartíma og hvaða daga er opið. Ég get ekki neitað því að starfsfólk hefur gert athugasemdir við þetta."

Færri afgreiðslustundir en á Norðurlöndum

Stefán Einar Stefánsson formaður VR lýsir því í bréfinu sem birtist í dag að dagarnir séu langir hjá verslunarfólki í Kringlunni og Smáralind og frídagar eins og almennir vinnudagar.  Sigurjón segir að afgreiðslutíminn sé vissulega langur, en bendir á að hann sé þó styttri en í verslunarmiðstöðvum í öðrum höfuðborgum á Norðurlöndum. Kringlan sé opin í 55,5 stundir á viku, en stærsta verslunarmiðstöð Ósló í samanburði opin í 72 stundir. 

Verslunarmiðstöðin Smáralind
Verslunarmiðstöðin Smáralind Mbl.is/Ernir Eyjólfsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert