Virkjanir kalla á verulegar samgöngubætur

Þjórsá
Þjórsá mbl.is/Rax

Framkvæmdanefnd Þjórsárveita segir að fyrirhugaðar virkjanaframkvæmdir og framtíðarnýting virkjana í neðri Þjórsá kalla á verulegar samgöngubætur á svæðinu. Telur nefndin að fyrirhugaðar virkjanir í Þjórsá geti skapað ný og spennandi atvinnutækifæri. Þetta kemur fram í ályktun frá framkvæmdanefnd Þjórsárveita vegna rammaáætlunar.

nefnir framkvæmdanefndin fyrirhugaða brú ofan við Búðafoss en hún muni tengja uppsveitir Árnessýslu og Rangárvallasýslu vel saman.

„Við bættar samgöngur skapast betri skilyrði til atvinnuuppbyggingar og samnýtingar þjónustu sveitarfélaga á svæðinu. Gott samgöngukerfi er lykilþáttur í vexti hverrar byggðar og skapar að auki tækifæri til aukinnar samvinnu sveitarfélaganna við Þjórsá.

Samgöngubætur í tengslum við fyrirhugaðar virkjanir í neðri-Þjórsá geta skapað ný og spennandi atvinnutækifæri, t.a.m. í ferðaþjónustu á Suðurlandi. Stjórn Landsvirkjunar telur mikilsvert að fyrirtækið fái sem hæst verð fyrir raforkuna, dreifi áhættu og auki fjölbreytni viðskiptavina sinna.

Lýst hefur verið yfir að ekki sé í forgangi að útvega orku til nýrra álvera á suðvesturhorni landsins. Með þeirri yfirlýsingu var gefinn tónn um að nóg væri komið af slíkum iðnaði og tími kominn á meiri fjölbreytni á nýtingu orkunnar sem skapast á Suðurlandi.

Mikill stuðningur er hjá Þjórsársveitum við útgefna stefnu Landsvirkjunar um að deila orkunni á fjölbreyttari, smærri og grænni iðnað sem ekki er endilega háður hafnsækni. Slíkur iðnaður hentar einkar vel á Suðurlandi og í tengslum við hann geta skapast ótal spennandi atvinnutækifæri á svæðinu.

Þjórsársveitir telja að það rími vel við útgefna stefnu ríkisstjórnarinnar í stjórnarsáttmála hennar en þar kemur fram að ríkisstjórnin vilji „efla græna atvinnustarfsemi, þar með talin verkefni þar sem hrein endurnýjanleg orka er nýtt á sjálfbæran hátt til verðmæta- og atvinnusköpunar.“ Þjórsársveitir hvetja ríkisstjórnina til að vinna með sveitarfélögunum á svæðinu og Landsvirkjun til eflingar fjölbreytts og græns iðnaðar á Suðurlandi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert