Grindavík vann Útsvar

Lið Grindavíkur í Útsvari 2012.
Lið Grindavíkur í Útsvari 2012.

Lið Grindavíkur sigraði lið Fljótsdalshéraðs í úrslitaþættinum í Útsvari á RÚV í kvöld. Leikar fóru þannig að Grindavík var með 72 stig á móti 55 stigum Fljótsdælinga.

Úrslitin réðust í síðasta lið keppninnar.

Vinningsliðið hlaut 300 þúsund krónur í verðlaun, sem þau gáfu til góðgerðarmála og auk þess hampa þau nú Ómarsbjöllunni eftirsóttu.

Lið Fljótsdalshéraðs í Útsvari 2012.
Lið Fljótsdalshéraðs í Útsvari 2012.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert