Íbúa á Selfossi sem var að viðra sig og hundinn sinn í dag meðfram Ölfusá í Hellisskógi við Selfoss var heldur brugðið þegar hann í einhverri rælni kíkti ofan í poka á árbakkanum við ánna. Við honum blasti dauð kanína, líklega nýdauð.
Kanínan hefur sennilega verið sett í pokann, bundið fyrir og honum síðan hent í ánna í þeim tilgangi að drepa dýrið, segir í frétt DFS.
Pokinn hefur svo rekið að árbakkanum. Íbúinn var í hálfgerðu sjokki þegar hann tilkynnti blaðamanni DFS um atburðinn.