Bandaríkjamenn sinna loftrýmisgæslu NATO á Íslandi í maí og júní

F-15 orrustuflugvélar bandaríska flughersins.
F-15 orrustuflugvélar bandaríska flughersins. AP

Frá 8. maí til 7. júní næstkomandi mun sveit frá bandaríska flughernum sinna loftrýmisgæslu NATO á Íslandi. Það er stefna NATO að aðildarríki NATO sjái um loftrýmisgæslu á Íslandi til þess að tryggja loftrými aðildarríkjanna, segir í tilkynningu.

Flugsveitir bandaríska flughersins munu koma frá þremur löndum (Bandaríkjunum, Bretlandi og Þýskalandi) til að taka þátt í verkefninu. Eistland, sem er aðildarríki NATO, leggur einnig til tvo starfsmenn á jörðu niðri til stuðnings verkefninu.

Bandarísku sveitirnar verða á vakt allan sólarhringinn við loftrýmisgæsluna. Ef einhverjar vísbendingar um ógnir berast tekur það F-15 orrustuþoturnar yfirleitt innan við fimm til tíu mínútur að taka á loft. Bandarísku sveitirnar fara einnig í þjálfunarflug í íslenskri lofthelgi.  Áður hafa Frakkland, Danmörk, Spánn og Pólland séð um loftrýmisgæslu á Íslandi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert