Lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af ökumanni á Reykjanesbraut í dag vegna óviðunandi frágangs á farmi. Líkt og sést á meðfylgjandi mynd hefði ökumaðurinn þurft að gera betur í að tryggja að farmurinn félli ekki af, en rekja mátti skreiðarslóð eftir bifreiðina inn eftir Reykjanesbrautinni.
Lögreglan telur því rétt að rifja upp 73. gr. umferðarlaga, en þar segir m.a. um hleðslu ökutækja: „Farm skal flytja þannig, að eigi hafi í för með sér hættu fyrir menn eða valdi munatjóni. Þess skal ennfremur gætt, að eigi sé hætta á að farmur dragist eftir akbraut eða falli á hana.“