Aukaferðir á föstudag og sunnudag

mbl.is/GSH

Vestmannaeyjaferjan Herjólfur siglir fimm ferðir milli Eyja og Landeyjahafnar á föstudag og sunnudag vegna mikilla bókana.

Fram kemur í tillkynningu að lagt verði af stað í aukaferðirnar kl. 14:30 frá Vestmannaeyjum og kl. 16 frá Landeyjahöfn.

Áætlun föstudag og sunnudag verður því sem hér segir:

Brottför frá Vestmannaeyjum 08:00, 11:30, 14:30, 17:30 og 20:30

Brottför frá Landeyjahöfn 10:00, 13:00, 16:00, 19:00 og 21:30

Áætlun laugardag og mánudag er skv. áður auglýstri áætlun fjórar ferðir og á þriðjudag tekur sumaráætlun Herjólfs gildi

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert