Guðlaugur Þór: Stjórnarráðsmálið illa undirbúið

Guðlaugur Þór Þórðarson.
Guðlaugur Þór Þórðarson.

Stjórnarráðsmálið er afskaplega illa undirbúið, segir Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður, í grein í Morgunblaðinu í dag.

Guðlaugur ræðir m.a. um kostnað vegna breytinga á stjórnarráðinu: „Á kjörtímabilinu hafa verið gerðar miklar breytingar á stjórnarráðinu. Ekki liggja fyrir nákvæmar upplýsingar um kostnað vegna þeirra ef undan er skilinn húsnæðiskostnaður. Hann er um 250 milljónir. Auðvitað er það einungis hluti af heildarkostnaðinum og erfitt er að meta þann kostnað sem hlýst af því að sameina og sundra stofnunum og ráðuneytum..."

Í niðurlagi greinar sinnar segir Guðlaugur: „Forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa gagnrýnt það að stjórnarandstæðingar hafi vakið athygli á augljósum göllum við þetta mál með ræðum í þinginu. Er það kaldhæðnislegt að málþófsmeistararnir Steingrímur Joð og Jóhanna Sigurðardóttir skuli ganga í það verk. Ég tek til máls í mörgum málum en er ekki enn búinn að ná þeim skötuhjúum í lengstu ræðum þeirra þrátt fyrir að ég leggi allar ræður mínar á þessu þingi saman".

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert