Stofnun ársins í könnun SFR stéttarfélags í almannaþjónustu er Sérstakur saksóknari en þetta er annað árið í röð sem sú stofnun er sigurvegari í flokki stórra stofnana. Landmælingar Íslands eru Stofnun ársins í flokki meðalstórra stofnana og Persónuvernd í flokki lítilla stofnana. Hástökkvarinn í ár er Sýslumaðurinn í Borgarnesi, en þann titil hlýtur sú stofnun sem hækkar sig mest á milli ára.
Niðurstöður úr könnuninni Stofnun ársins og Fyrirtæki ársins 2012 voru kynntar á Hótel Nordica 11. maí kl. 17:00. Könnunin er samstarfsverkefni VR og SFR stéttarfélags í almannaþjónustu með þátttöku ríkisins og nú í ár er Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar (St.Rv.) einnig með. Þetta er í sjöunda sinn sem SFR tekur þátt í könnuninni sem er ein stærsta sinnar tegundar á landinu. Tæplega 50 þúsund starfsmenn á almennum og opinberum vinnumarkaði fengu könnunina senda.
Stofnanir ársins hjá SFR stéttarfélagi í almannaþjónustu eru þrjár að þessu sinni. Í ár er valið um Stofnun ársins í þremur flokkum í stað tveggja áður, þ.e. stórra stofnana með 50 starfsmenn eða fleiri, meðalstórar stofnanir með 20-49 starfsmenn og litlar stofnanir með færri en 20 starfsmenn. Könnun SFR tekur mið af niðurstöðum 5500 ríkisstarfsmanna en könnunin tekur nú til allra starfsmanna ríkisstofnana óháð stéttarfélagsaðild.