Ný slökkvistöð var formlega tekin í notkun í dag hjá samreknu slökkviliði Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps. Af tilefni af því var opið hús að Kvíghólsmýri á Laugum, þar sem stöðin er staðsett.
Fram kemur á fréttavefnum 641.is að mikill hluti alls búnaðar slökkviliðs Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps sé nýr og hið samrekna slökkvilið afar vel tækjum búið. Ekkert hafi verið slegið af þeim miklu kröfum sem gerðar eru til brunavarna og tækjabúnaðar í dag.
„Allar brunaslöngur eru nýjar og slökkviliðsgallar á slökkviliðmenn eru nýir.
Reykköfunartækin eru sex talsins og eru glæný. Slökkviliðið á nokkrar færanlegar auka vatnsdælur og ýmsan annan búnað sem hæfir nýrri slökkviliðsstöð Mannskapurinn er vel þjálfaður og kann til verka og íbúar í dreifbýli Þingeyjarsýslu geta treyst á góðan búnað slökkviliðs Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps,“ segir á vef 641.is