Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra fer um helgina til Chicago, þar sem haldinn verður fundur leiðtoga NATO-ríkjanna.
Í sendinefnd Íslands eru utanríkisráðherra, fastafulltrúi Íslands gagnvart NATO og embættismenn frá forsætis- og utanríkisráðuneyti, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Forsætisráðuneytinu.
Leiðtogarnir funda einnig með þátttökuríkjum í aðgerðum í Afganistan, svo og samstarfsríkjum bandalagsins.