Óbreyttur meirihluti í Árborg

Eyþór Arnalds og Elfa Dögg Þórðardóttir
Eyþór Arnalds og Elfa Dögg Þórðardóttir Af vef DFS

Sjálfstæðismenn í Árborg náðu samkomulagi á fjögurra tíma fundi í dag um að Elfa Dögg Þórðardóttir, bæjarfulltrúi flokksins í hreinum meirihluta í Árborg starfaði áfram með meirihlutanum.

 Það verður því ekkert af því að Helgi S. Haraldsson, fulltrúi B-listans, komi inn í meirihlutann eins og stóð til á tímabili. „Þetta var mjög fínn fundur, sem ég er mjög sátt við. Við töluðum opinskátt um hlutina og hreinsuðum út ýmis erfið mál þannig að nú eru allir sáttir og sælir,“ sagði Elfa Dögg í samtali við DFS.

„Niðurstaðan er frábær, Efla Dögg nýtur 100% trausts og stuðnings hjá meirihlutanum enda kom það skýrt fram á fundinum í dag. Nú höldum við áfram að vinna að góðum málefnum fyrir Árborg enda er sól úti og menningarhátíðin „Vor í Árborg“ í fullum gangi,“ sagði Eyþór Arnalds, oddviti sjálfstæðismanna, eftir fundinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert