Þingfundur um stjórnarskrármál hafinn

Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, var fyrst á mælendaskrá í dag.
Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, var fyrst á mælendaskrá í dag. mbl.is/Ómar

Þing­fund­ur er nú haf­inn að nýju á Alþingi, en fund­ur stóð til miðnætt­is í gær. Eina málið á dag­skrá er til­laga um ráðgef­andi þjóðar­at­kvæðagreiðslu um til­lög­ur stjórn­lagaráðs um breyt­ing­ar á stjórn­ar­skránni. 

12 voru á mæl­enda­skrá í upp­hafi þing­fund­ar, þar af 8 þing­menn Sjálf­stæðis­flokks og tveir þing­menn Fram­sókn­ar­flokks, en báðir flokk­ar hafa lagst hart gegn til­lög­unni. Tveir þing­menn Vinstri grænna eru einnig á mæl­enda­skrá.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert