Leki kom að vélarvana skipi

Björgunarbátur frá Landsbjörgu. Mynd úr safni.
Björgunarbátur frá Landsbjörgu. Mynd úr safni.

Björgunarskip og bátur Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Snæfellsbæ var kallað út um þrjúleytið í nótt vegna rækjuskips sem var orðið vélarvana um 5 sjómílur norðan við Rif. Leki hafði komið að skipinu og þegar björgunarsveitarmenn komu að skipinu var tæplega eins metra djúpur sjór í vélarrúmi.

Dælum var komið um borð og gekk fljótt og vel að dæla sjó úr skipinu, samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg. Ekki tókst þó að koma rafmagni á skipið aftur og fylgdu því björgunarsveitarmenn því í höfn í Rifi og var komið þangað um klukkan sjö í morgun.

Ágætisveður var en bæði björgunarskip og Atlantic-björgunarbátur tóku þátt í aðgerðinni. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert