Tilkynning barst til lögreglunnar á Suðurnesjum skömmu eftir miðnætti í fyrrinótt um að flugvél væri að koma inn til lendingar á Keflavíkurflugvelli með farþega sem væri meðvitundarlaus eftir heilablóðfall.
Var sjúkrabifreið kölluð út og reyndist um að ræða tæplega sextugan karlmann sem var á leið með vélinni frá Austurríki til Riga í Lettlandi.
Læknir og sjúkralið hlúðu að honum og var hann fluttur á Landspítalann í Fossvogi.