Evrópusambandið (ESB) og íslensk stjórnvöld hafa orðið sammála um að setja á fót vinnuhóp til þess að meta stöðu mála varðandi gjaldeyrishöftin og möguleikana á að aflétta þeim.
Einnig að aðstoða við að móta sameiginlegan skilning á erfiðleikunum í því ferli. Þetta kemur fram í aðsendri grein Štefans Füle, framkvæmdastjóra stækkunar- og nágrannastefnu ESB, á miðopnu Morgunblaðsins í dag.
Štefan Füle heimsækir Ísland í dag og á morgun. Erindi hans hingað er að ræða það sem er framundan í aðildarviðræðunum.