Forstjóri Landspítala segir að grípa þurfi til aðgerða til að koma spítalanum og þá sérstaklega lyflækningasviði aftur innan ramma fjárhagsáætlunar. Eftir fyrstu þrjá mánuði þessa árs stefndi lyflækningasvið í verulegan halla og varð ljóst að grípa þyrfti til aðgerða til að mæta því. Þetta kemur fram í pistli Björns Zoëga á vef spítalans.
„Eins og ég hef áður sagt ykkur hefur mikið verið unnið að því síðustu vikur að koma spítalanum og þá sérstaklega lyflækningasviði aftur innan ramma fjárhagsáætlunar. Þið vitið að það hefur verið mikill niðurskurður á spítalanum síðustu ár en starfsemin verið að aukast, sérstaklega á síðasta ári og fyrstu mánuðum þessa árs. Eftir fyrstu þrjá mánuði þessa árs stefndi lyflækningasviðið í verulegan halla. Við gripum þá strax inn í og sáum við skoðun að það þyrfti aðgerðir upp á 125 milljónir króna (á ársgrundvelli).
Þessar aðgerðir sem við kynnum nú munu hafa margvísleg áhrif en áfram er leitast við að verja öryggi sjúklinga. Það er þó erfitt að segja annað en að þetta hafi áhrif á þjónustu við sjúklinga,“ segir í pistli Björns.
Helstu breytingar eru, samkvæmt upplýsingum á vef Landspítalans:
Dregið verður úr starfsemi á hjartagátt og þjónustutími á föstudögum styttur.
Valkvæðum kransæðamyndatökum og kransæðaþræðingum verður fækkað en allri bráðastarfsemi sinnt áfram.
Dregið verður úr starfsemi á Grensásdeild í sumar í lengri tíma en áður.
Á líknardeild í Kópavogi verða einungis 8 rúm opin til 1. september.
Göngudeildir sviðsins verða meira lokaðar en fyrri ár.
Endurskipulagning stendur yfir á legudeildum með það að markmiði að stytta legutímann og að sjúklingar fái hagkvæmasta þjónustustigið sem hentar þeim, á öruggan hátt.
Það stendur yfir endurskoðun á vöktum og yfirvinnu.
Áfram verður haldið að fækka stjórnendum og skýra ábyrgð þeirra stjórnenda sem eftir verða. Á þetta sérstaklega við um sjúkra- og iðjuþjálfun.
Enn meiri lækkun lyfjakostnaðar og það sama gildir um ýmsar rekstrarvörur.