Nöfn ræðumanna í kvöld

mbl.is/Sigurgeir Sigurðsson

Almennar stjórnmálaumræður fara fram á Alþingi í kvöld og hefjast umræðurnar kl. 19:50. Þeim verður útvarpað og sjónvarpað. Búið er að ákveða röð ræðumanna.

Fyrir Sjálfstæðisflokk tala í fyrstu umferð Ólöf Nordal, 2. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri Ragnheiður Ríkharðsdóttir, 8. þm. Suðvesturkjördæmis, en í þeirri þriðju Jón Gunnarsson, 12. þm. Suðvesturkjördæmis.  

Ræðumenn Samfylkingarinnar eru: Magnús Orri Schram, 7. þm. Suðvesturkjördæmis,  í fyrstu umferð, Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra, í annarri, en í þriðju umferð Skúli Helgason, 7. þm. Reykjavíkurkjördæmi suður.  

Fyrir Framsóknarflokk tala Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 8. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, Birkir Jón Jónsson, 2. þm. Norðausturkjördæmis, í annarri, en í þriðju umferð Siv Friðleifsdóttir, 6. þm. Suðvesturkjördæmis.  

Fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð tala í fyrstu umferð Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í annarri Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra, en Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, í  þriðju umferð.       

Fyrir Hreyfinguna tala í fyrstu umferð Birgitta Jónsdóttir, 9. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri umferð talar Margrét Tryggvadóttir, 10. þm. Suðurkjördæmis, og Þór Saari, 9. þm. Suðvesturkjördæmis í þeirri þriðju.  

Ræðumenn utan flokka eru: Lilja Mósesdóttir, 6. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, talar síðust í fyrstu umferð, Guðmundur Steingrímsson, 8. þm. Norðvesturkjördæmis, talar síðastur í annarri umferð og Atli Gíslason, 4. þm. Suðurkjördæmis, talar síðastur í þriðju umferð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert