Um 260 lítrum af olíu stolið

Reuters

Tilkynnt var til lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni að díselolíu hefði verið stolið af tveimur bílum. Í ljós kom að um 260 lítrum af olíu hafði verið stolið af bílunum, sem eru í eigu flutningafyrirtækis. Á vettvangi hafði verið skilinn eftir lítill olíubrúsi og slanga, sem hinir óprúttnu höfðu notað við þjófnaðinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert