9.358 manns hafa í dag skrifað undir áskorun á Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, á vefsíðunni www.kjosendur.is um að ganga á fund forseta Íslands og biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt og að þing verði rofið og boða verði til þingkosninga.
Mbl.is greindi fyrst frá málinu 23. maí síðastliðinn, en þá höfðu 30 manns skrifað undir áskorunina. Síðan eru liðnir 11 dagar og hafa því að meðaltali 850 manns skrifað undir þessa áskorun á dag síðan þá.