Athafnamaðurinn Björgólfur Thor Björgólfsson segir það vitleysu sem komi fram hjá Jóhannesi Jónssyni, kenndum við Bónus, í nýlegu viðtali að allt hafi verið tekið af þeim feðgum og eignirnar runnið til að greiða Icesave.
Á vefsvæði sínu fer Björgólfur Thor yfir málið og bendir á að Landsbankinn, ólíkt því sem hafi tíðkast annars staðar, hafi tekið veð fyrir lánveitingum sínum til Baugs. „Baugur gat ekki greitt og Landsbankinn gekk að veðunum. Iceland-verslanakeðjan var með réttu eign Landsbankans, en ekki þeirra sem skulduðu fyrirtækið að fullu, eftir að hafa í þokkabót skafið allt fé út úr því.“
Björgólfur Thor segir Baugsmenn hafa hreykt sér af Iceland og haldið því fram að um væri að ræða gullgæs, eða banka því reglulega væri hægt að taka peninga út úr félaginu. Hvað þetta varðar rifjar Björgólfur Thor upp að 55 milljarðar króna hafi runnið sem arðgreiðslur frá Iceland til aflandsfélagsins Pace.
„Eftir hrun kom svo í ljós að eigendur höfðu selt fyrirtækið til annars félags, sem þeir áttu sjálfir, á uppsprengdu verði og tekið lán fyrir kaupunum, en hreyktu sér jafnframt af því að hafa slegið met í „hagnaði“. Þeir keyptu fyrirtækið sem sagt af sjálfum sér með skuldsettri yfirtöku, en hrópa nú um það yfirgengilega ranglæti að bankinn sem lánaði þeim fé skuli hafa tekið gullgæsina af þeim,“ segir Björgólfur.
Hann segir þá staðreynd, að tekist hafi að selja fyrirtækið á góðu verði nokkrum árum eftir að fyrri eigendur urðu að hætta afskiptum af því, segi ekkert um viðskiptasnilld fyrri eigenda.
Þá skýtur Björgólfur Thor föstu skoti að Jóhannesi og segir fullkomlega óeðlilegt að menn geti gengið frá viðskiptum án nokkurra persónulegra eftirmála ef og þegar allt fer á versta veg. „Annað hvort búa menn svo vel að hafa raunverulegar eignir til að byggja skuldauppgjör sitt á eða við þeim blasir gjaldþrot. Það eru eðlilegir viðskiptahættir. Ekki verður séð að sú grundvallarregla eigi við um hinn kvartsára kaupmann.“
Að endingu minnist Björgólfur á að Jóhannes ætli hasla sér völl í verslunargeiranum á Íslandi á nýjan leik. „Og mun sjálfsagt auglýsa þau umsvif sín í sjónvarpi, útvarpi, vefmiðli og dagblaði í eigu 365.“