Vinnulag sem ekki væri tekið gilt

Björn Valur Gíslason með Steingrími J. Sigfússyni, formanni VG.
Björn Valur Gíslason með Steingrími J. Sigfússyni, formanni VG. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna, segist ekki viss um að vinnulagið á Alþingi yrði tekið gilt um borð í einhverju þeirra skipa sem eru á leið til hafnar til að fagna Sjómannadeginum.

Í pistli á vefsvæði sínu fer Björn Valur yfir síðustu viku í stórum dráttum. „Þriðjudaginn 29. maí var þingfundur í 2 klukkutíma á meðan eldhúsdagsumræður stóðu yfir. Þingmenn mættu svo úthvíldir eftir fjögurra daga frí á miðvikudeginum og líklegir til stórræðanna. Það fór þó þannig að þeir trítluðu heim upp úr kvöldmat sælir og ánægðir.

Á fimmtudeginum lauk þingfundi svo síðari hluta dags og vel fyrir kvöldmat gengu þingmenn svo brosandi út í sólinni eftir rólegan dag á þinginu.

Í gær tóku þingmenn hinsvegar á sig rögg enda ekki seinna vænna og héldu út rétt fram yfir miðnætti í umræðum um veiðigjöld á sjávarútveg. Þá voru enn 17 þingmenn á mælendaskrá.“

Og niðurstaða Björns Vals er þessi: „Eftir fjögurra daga helgarfrí tókst að halda þingmönnum við vinnu í þrjá dagparta og einn heilan dag áður en næsta helgarfrí tók við.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert