Landsbankinn: Búnaði komið upp á Reykhólum

Landsbankinn.
Landsbankinn.

Reykhólahreppur verður ekki alveg bankalaus þrátt fyrir lokun útibúsins í Króksfjarðarnesi. Núna er unnið að því að koma fyrir búnaði á Reykhólum þar sem starfsmaður verður með opið á miðvikudögum, fyrst um sinn að minnsta kosti. Hann mun koma í Barmahlíð fyrir hádegi en síðan verður hann með opið kl. 13-16 í aðstöðu sem bankinn hefur fengið í húsakynnum Reykhólahrepps við Maríutröð. Séð verður til þegar kemur fram á haustið hvernig þessi tími reynist og hvort einhver annar dagur væri heppilegri. Þetta kemur fram í frétt á vefnum Reykholar.is.

Ekki er víst að allur búnaður verði kominn í afgreiðslu bankans á Reykhólum núna á miðvikudag. „Síðan er hægt að hringja í Landsbankann á Patreksfirði. Þar verður fyrirspurnum svarað alveg á sama hátt og við höfum gert hér gegnum síma fram að þessu,“ segir Sóley Vilhjálmsdóttir, starfsmaður bankans, á Reykhólavefnum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert