Nýti útvegsmenn ekki þær aflaheimildir sem þeim hefur verið úthlutað af ríkinu um þessar mundir ætti ríkisstjórnin þegar að hefjast handa við að innkalla þær heimildir og úthluta til annarra. Samhliða því ætti að skoða hvort ekki ætti að efla strandveiðar við landið.
Þetta sagði Róbert Marshall, þingmaður Samfylkingarinnar, á Alþingi í dag og vísaði þar til ákvörðunar útgerðarmanna um að halda skipum sínum í höfn í mótmælaskyni við fyrirætlanir stjórnvalda um breytta stjórn fiskveiða.
Samflokksmaður Róberts, Ólína Þorvarðardóttir, fór hörðum orðum um aðgerðir útgerðarmanna og sakaði þá um að að berjast gegn ríkisstjórninni og fyrir að níðast á landverkafólki og sjómönnum og ala á ótta í þeirra röðum um hagsmuni sína.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, hafnaði málflutningi þingmanna Samfylkingarinnar og benti meðal annars á að bæði landverkafólk og sjómenn styddu aðgerðir útgerðarmanna.
Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokskins, minnti meðal annars á að Evrópusambandið, sem Samfylkingin vildi ganga inn í, horfði til fiskveiðistjórnunarkerfis Íslands sem fyrirmyndar.