6 milljarða vaxtakostnaður

Íslenska ríkið þarf að greiða rúma sex milljarða króna í vaxtakostnað vegna SpKef. Heildarkostnaður við málið mun því nema um 25 milljörðum króna, að því er fram kemur á vef RÚV.

Haft er eftir Steingrími J. Sigfússyni, fyrrverandi fjármálaráðherra, að þetta sé miklu hærri upphæð en hann hafði vonast eftir.

Sérstök úrskurðarnefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkið þurfi að greiða rúmlega 19 milljarða króna með SpKef. Fram kemur á vef RÚV, að ríkið gefi út skuldabréf fyrir upphæðinni, og miðist vextirnir við innlánsvexti Seðlabankans sem nú séu 4,5%.

Þá segir að fjármálaráðuneytið geri ráð fyrir því að vaxtakostnaður vegna málsins verði tæpar 900 milljónir króna á ári. Vextirnir verði reiknaðir um eitt ár aftur í tímann, og fram á mitt ár 2018. Því verði vaxtatímabilið um sjö ár, og ef fram haldi sem horfi má því gera ráð fyrir að vaxtakostnaður ríkisins vegna SpKef verði rúmir sex milljarðar króna,

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka