Í kjölfar efnahagsþrenginga og bankahruns árið 2008 hefur málum vegna framleiðslu fíkniefna fjölgað hratt en málum vegna innflutnings fíkniefna heldur fækkað. Þetta kemur fram í upplýsingum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um framleiðslu fíkniefna.
Á undanförnum árum hefur orðið athyglisverð þróun þegar kemur að innflutningi fíkniefna, sem og framleiðslu þeirra hér á landi. Þegar litið er til talna lögreglunnar um fíkniefnamál á höfuðborgarsvæðinu og borinn saman innflutningur og framleiðsla er munurinn nokkur. Skráð brot vegna innflutnings fíkniefna árin 2005-2008 voru mun fleiri en þau sem sneru að framleiðslu fíkniefna á sama tímabili.
Í kjölfar efnahagsþrenginga og bankahruns árið 2008 varð hins vegar breyting í þessum efnum. Frá þeim tíma hefur þróunin algjörlega snúist við og málum vegna framleiðslu fíkniefna fjölgað hratt en málum vegna innflutnings fíkniefna heldur fækkað.
Fjölgun mála er einkum kannabisræktunum um að kenna en fjöldi kannabisplantna er haldlagður á hverju ári. Í kannabis eru mörg ólík efni en eitt þeirra, THC, veldur aðallega vímuáhrifunum. Allar vísbendingar lögreglu benda til að meðalstyrkur þess fari hækkandi og er það áhyggjuefni. Stöðugur áróður um skaðleysi kannabis gerir líka illt verra en neysla kannabisefna getur einmitt haft mjög alvarlegar afleiðingar í för með sér, segir í samantekt lögreglunnar.
Fjöldi kannabisplantna og magn maríjúana sem var haldlagt milli áranna 2008 og 2009 margfaldaðist, á sama tíma og magn hass sem var haldlagt fór að minnka. Magn haldlagðs amfetamíns sveiflaðist mjög milli áranna 2008 og 2011, magn kókaíns dróst saman en fjöldi ecstasy taflna jókst mikið.
Þegar litið er til þeirra sem hafa verið kærðir í þeim málum sem varða framleiðslu fíkniefna, kemur fram að síðustu ár hafa um 90 prósent þeirra verið karlar. Hlutur kvenna í þessum brotum jókst þó um sex prósent milli 2008 og 2011. Um 90 prósent þessara einstaklinga eru íslenskir ríkisborgarar, en af erlendum brotamönnum hafa Pólverjar, Litháar og Víetnamar helst komið við sögu í þessum málum.
Síðustu ár voru hlutfallslega flestir þeirra sem voru kærðir vegna framleiðslu fíkniefna á aldrinum 24-30 ára. Árið 2011 var ríflega helmingur einstaklinga á aldrinum 21-30 ára.
Þrír hafa verið teknir fjórum sinnum af lögreglunni vegna framleiðslu, um 10 þrisvar sinnum, tæplega 50 tvisvar og tæplega 400 hafa verið teknir einu sinni.