Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu er ekki kunnugt um tilvik þess að ESB, með fjármunum og þátttöku sendiherra og sendiráðs, blandi sér með beinum hætti í umræður um áhrif ESB-aðildar á þá málaflokka sem heyra undir ráðuneytið. Þetta kemur fram í skriflegu svari ráðherra.
Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Framsóknarflokks, spurði Steingrím J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, út í áhrif ESB á umræður um ESB-aðild. Meðal annars spurði hann hvernig ráðherra hygðist tryggja að starfsemi Evrópustofu og þeir fjármunir sem ESB ver til hennar, ásamt beinni þátttöku sendiherra og sendiráðs ESB, skekki ekki lýðræðislega umræðu um þá málaflokka sem heyra undir ráðuneytið.
Í svari Steingríms segir, að hluti af því að efla umræðu og upplýsingamiðlun um Evrópusambandið meðan á aðildarferlinu standi sé að fjármunir hafi verið veittir af Alþingi til þeirra hreyfinga og samtaka sem halda uppi mismunandi sjónarmiðum í umræðunni. „Með öflugri og upplýstri umræðu þar sem öllum er gefinn kostur á þátttöku verður endanleg niðurstaða um aðildarsamning í þjóðaratkvæðagreiðslu byggð á upplýstri ákvörðun.“