Velta í dagvöruverslun jókst um 2,5% á föstu verðlagi í maí miðað við sama mánuð í fyrra og jókst um 8,9% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum jókst velta dagvöruverslana í maí um 1,9% frá sama mánuði í fyrra. Verð á dagvöru hefur hækkað um 6,2% á síðastliðnum 12 mánuðum. Þetta kemur fram í samantekt Rannsóknarseturs verslunarinnar.
Sala áfengis jókst um 7,8% í maí miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og um 13,2% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum jókst velta áfengis í maí um 1,9% frá sama mánuði í fyrra. Verð á áfengi var 4,9% hærra í maí síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra.
Fataverslun dróst saman um 5,1% í maí miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og um 2,1% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum minnkaði velta fataverslunar í maí um 7,9% frá sama mánuði í fyrra. Verð á fötum hækkaði um 3,2% frá sama mánuði fyrir ári.
Velta skóverslunar jókst um 2,2% í maí á föstu verðlagi og um 7,2% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð fyrir ári. Verð á skóm hækkaði um 4,9% frá maí í fyrra.
Velta húsgagnaverslana jókst um 0,8% í maí frá sama mánuði fyrir ári á föstu verðlagi og um 5,8% á breytilegu verðlagi. Verð á húsgögnum var 5,0% hærra í maí síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra. Velta í sölu skrifstofuhúsgagna dróst saman um 9,3% í maí síðastliðnum samanborið við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi. Velta sérverslana með rúm jókst um 17,7% á föstu verðlagi.
Sala á raftækjum í maí jókst um 0,9% á föstu verðlagi og um 2,6% á breytilegu verðlagi. Verð á raftækjum var 1,7 % hærra en í maí 2011.