Undanfarin misseri hefur Landhelgisgæslan þurft að hafa talsverð afskipti af bátum sem hafa verið á veiðum inni í skyndilokunum. Aðallega er um að ræða minni skip og báta og þá sérstaklega strandveiðibáta.
Í dag voru þrír bátar staðnir að ólöglegum handfæraveiðum í skyndilokunarhólfum í Húnaflóa og var þeim öllum vísað til hafnar og í kjölfarið verða skipstjórar þeirra kærðir fyrir athæfið. Landhelgisgæslan vill brýna fyrir skipstjórum að kynna sér vel skyndilokanir og önnur lokuð svæði áður en haldið er til veiða, segir á vef Landhelgisgæslunnar.