Agnes vígð til biskups í dag

Sr. Agnes M. Sigurðardóttir, verðandi biskup Íslands.
Sr. Agnes M. Sigurðardóttir, verðandi biskup Íslands. mbl.is

Sr. Agnes M. Sigurðardóttir verður vígð sem biskup Íslands í dag, sunnudag, og hefst athöfnin í Hallgrímskirkju klukkan tvö. Agnes er fyrsta konan sem vígð verður sem biskup yfir Íslandi og 57. biskup í röðinni talið frá Ísleifi Gissurarsyni sem vígður var til biskups í Skálholti árið 1056.

Eins og fjallað var um í Morgunblaðinu síðastliðinn miðvikudag fóru íslenskir biskupar lengst af úr landi til þess að hljóta vígslu allt þar til Þórhallur Bjarnason var vígður í Dómkirkjunni í Reykjavík árið 1908. Síðan hafa biskupar Íslands verið vígðir þar þangað til Karl Sigurbjörnsson var vígður í Hallgrímskirkju árið 1998.

Fjölmargir erlendir gestir verða viðstaddir biskupsvígsluna nú og þar á meðal biskupar frá Norðurlöndum og Bretlandseyjum en þeir verða að þessu sinni fleiri en nokkurn tímann áður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert