Peningapoki fannst í Hafravatni um hádegisbilið í gær. Að sögn lögreglu á höfuðborgarsvæðinu fannst pokinn, sem innihélt rétt rúmar 1.000 krónur í mynt, þegar menn voru við veiðar í vatninu. Pokinn var merktur Íslandsbanka en veiðimennirnir skiluðu honum á lögreglustöð.
Eiganda pokans er enn leitað.