112 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta í maímánuði. Flest gjaldþrot voru í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð sem og heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum.
Til samanburðar voru 175 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta í maí í fyrra. Fyrstu fimm mánuði ársins var fjöldi gjaldþrota 520, en það er um 26% fækkun frá sama tíma í fyrra þegar 702 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta.
Í maímánuði voru skráð 151 ný einkahlutafélög, flest í fjármála- og vátryggingastarfsemi annars vegar og fasteignaviðskiptum hins vegar. Til samanburðar voru 145 ný einkahlutafélög skráð í maí í fyrra. Fyrstu fimm mánuði ársins var fjöldi nýskráninga 737, en það er 1% aukning frá sama tíma í fyrra þegar 731 fyrirtæki voru nýskráð.