Dældi eldsneyti en greiddi ekki

AFP

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt 54 ára karlmann í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að dæla í fjögur skipti eldsneyti á bifreið sína án þess að greiða fyrir. Upphæðin nam alls ríflega 36 þúsund krónum.

Umrædd atvik áttu sér stað í október 2009, janúar 2010, janúar 2011 og sepember 2011, ávallt á bensínstöðvum í Reykjavík, en maðurinn er búsettur á Akureyri.

Maðurinn játaði brot sín en hann hefur ekki áður gerst sekur um sambærileg brot.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert