„Menn sjá yfirleitt svona aðeins einu sinni á ævinni ef þeir eru heppnir,“ segir Stefán Guðmundsson hjá Gentle Giants í Húsavík sem var með erlenda ferðamenn í hvalaskoðun í gærkvöldi. Báturinn Amma Sigga var á leið í land þegar fimm háhyrningar birtust og rifu í sig hnísu aðeins örfáa metra frá bátnum.
Stefán segir að háhyrningarnir, tvö fullorðin dýr og þrír kálfar, hafi birst við Fiskiskerið vestur við Víknafjöll. Þeir hafi lónað í rólegheitum undan Vargsnesi, inn og utan við Þyrsklingana, grunnt með ströndinni en horfið síðan í kaf í nokkrar mínútur. „Svo birtist tarfurinn með hnísu í kjaftinum rétt við bátinn, þá hófust mikil læti á yfirborðinu þegar kálfarnir gerðust aðgangsharðir og vildu fá sitt af bráðinni,“ segir Stefán og bætir við að þetta hafi verið einstök sjón. „Ferðamennirnir voru orðlausir og höfðu aldrei á ævinni séð neitt þessu líkt í villtri náttúrunni. Þeir voru allir í einhverju sálarástandi sem menn komast ekki í dagsdaglega og tilfinningarnar voru blendnar eðli málsins samkvæmt en upplifunin alveg lygileg og einstök,“ segir hann og bætir við að allar myndavélar hafi verið á lofti meðan á þessu stóð.
Hann segir átið hafa tekið tiltölulega fljótt af og síðan dóluðu háhyrningarnir sér áfram inn með ströndinni, „læddust eins og úlfahjörð í leit að næstu bráð inn á milli skerja.“ Skömmu síðar sáust þeir taka sel með sama hætti og hnísuna. „Fuglarnir sáu svo um að ekkert yrði afgangs,“ segir Stefán að lokum.