Landhelgisgæsla Íslands sinnti nýverið eftirlitsstörfum á NEAFC-svæðinu (e. North East Atlantic Fisheries Commission) á úthafskarfamiðunum á Reykjaneshrygg. Fóru varðskipsmenn til eftirlits um borð í ellefu togara frá Rússlandi, Spáni, Portúgal og Færeyjum.
Á vefsvæði Landhelgisgæslunnar segir, að þegar komið var á svæðið hafi þar verið tuttugu erlendir togarar, eitt erlent flutningaskip, eitt erlent olíuskip og tólf íslenskir togarar. Íslensku togararnir voru að veiðum fyrir innan fiskveiðimörkin en erlendu togararnir voru að veiðum í tveim hópum utar.
Auk togaranna sem varðskipsmenn á Þór fóru um borð í voru á svæðinu togarar frá Litháen, Þýskalandi og Noregi. Að sögn skipverja höfðu aflabrögð togaranna verið léleg að undanförnu.
Úthafskarfaveiðar á Reykjaneshrygg hafa staðið yfir frá 10. maí og hafa eftirlitsskip frá Frakklandi og Spáni einnig sinnt eftirliti á svæðinu.