Hjónin Ragnar Fjalar Sævarsson og Sesselía Birgisdóttir tóku afdrifaríka ákvörðun fyrir 6 árum þegar þau létu af störfum sínum hér á landi og fluttust til Svíþjóðar með kornunga dóttur. Þau luku framhaldsnámi í Lundi og létu gamlan draum rætast.
Þrátt fyrir að kröftugur straumur beri Íslendinga í átt að auknum niðurskurði og samdrætti eru sumir sem hafa kjark til að synda á móti straumnum og hafa árangur sem erfiði. Það vita Ragnar Fjalar og kona hans Sesselía betur en margir, en á hrunárinu sjálfu, 2008, stofnuðu þau íbúðaleigumiðlunina Red Apple Apartments sem síðan þá hefur stækkað jafnt og þétt og leigir nú út íbúðir um alla Evrópu.
Djarfhuga hjónin létu það ekki á sig fá að alls staðar drægju fyrirtæki saman seglin á þeim tíma sem þau hugðust opna sitt eigið og héldu ótrauð áfram að byggja upp leigumiðlun með íbúðir í Evrópu, á meðan allt í kring var verið að loka fyrirtækjum eða þau lýst gjaldþrota. Uppbyggingin hefur enda krafist mikils af stofnendunum. „Við opnuðum 2008 og höfum því rekið fyrirtækið dag og nótt í fjögur ár.“
Í dag leigir fyrirtækið út íbúðir á 47 stöðum í rúmlega 20 Evrópulöndum. „Þetta eru meira og minna flest lönd í Evrópu, en við höfum meðvitað haldið okkur við Evrópumarkað til að missa ekki yfirsýn og stjórn á gæðum framboðsins,“ segir Ragnar.
En hvaðan fengu hjónin hugmyndina að íbúðaleigumiðlun í Evrópu? „Þetta hófst í raun þannig að við hjónin fórum til Madrídar í frí með vinafólki okkar. Börnin voru með í för og við höfðum áhuga á að geta eldað saman og átt huggulegar stundir, þannig að við leigðum íbúð þar í borg,“ segir Ragnar.
Húsnæðið, sem í fyrstu virtist traustvekjandi, olli miklum vonbrigðum. „Við lentum einfaldlega í bullandi vandræðum með íbúðina, við vorum þarna í janúar og vatnið fór af þannig að við höfðum ekkert heitt vatn, en svo snemma árs er ískalt í Madríd. Fleiri gallar voru á íbúðinni og þetta skemmdi að stórum hluta dvölina.“ Í framhaldinu fóru Sesselía og Ragnar að velta fyrir sér viðskiptum af þessu tagi. „Við fórum að velta fyrir okkur hvort það væri ekki hægt að gera betur.“
Skömmu síðar fóru Ragnar og Sesselía í meistaranám í Svíþjóð og hófust hjónin handa að byggja upp fyrirtækið samhliða námi, meðal annars til að geta komið í veg fyrir að fleiri fjölskyldur upplifðu vonbrigðin sem þau urðu fyrir í Madríd.
Ragnar er viðskiptafræðimenntaður og Sesselía félagsfræðingur frá Háskóla Íslands. „Ég var framkvæmdastjóri hjá prentþjónustufyrirtækinu Samskiptum, sem síðar sameinaðist Póstinum. Sessa vann hjá Eddu miðlun og útgáfu og hjá bókaforlaginu Veröld. Það voru okkar síðustu verkefni áður en við fluttum út árið 2006.“
Hjónin tóku ákvörðun um að yfirgefa landið og fara saman í eins árs framhaldsnám en á þessum tíma voru þau með lítið barn. Ragnar og Sesselía tóku í framhaldinu meistaragráðu í alþjóðlegum markaðsfræðum og vörumerkjastjórnun í Lundi. „Upprunalega planið var að stoppa aðeins hér í eitt ár og halda síðan áfram, en okkur líkaði svo vel að við ákváðum að skrá okkur í enn frekara nám.“ Meistaranám í frumkvöðlafræði varð fyrir valinu hjá Ragnari en kona hans fór í meistaranám í mannauðsstjórnun. „Að náminu loknu ákváðum við svo að sameina krafta okkar í uppbyggingu fyrirtækisins,“ segir Ragnar.
Aðspurður hvort námið nýtist vel í rekstri Red Apple Apartments segir Ragnar svo vera. „Námið var mjög skemmtilegt að því leyti að markmið þess er að stofna fyrirtæki og í þessu tilfelli náðist það markmið og gott betur.“
Að sögn Ragnars er námið hagnýtt og í því er lögð áhersla á tengsl við atvinnulífið. „Helmingur námsins gengur út á að stofna fyrirtæki þannig að það hentaði ofsalega vel fyrir þá áætlun okkar að stofna og byggja upp Red Apple Apartments.“ Ragnar útskrifaðist svo í byrjun júní 2008 og fyrirtækið var opnað aðeins fáeinum dögum síðar, 11. júní.
Árið 2008 var fyrirtækjaeigendum og atvinnurekendum afar erfitt og fjölmörgum fyrirtækjum tókst ekki að standa af sér storminn í kjölfar hruns. Ragnar lét þó neikvæðniraddir og svartsýnisspár sem vind um eyru þjóta. „Ég hafði reynslu af framkvæmdastjórn hjá Samskiptum og hafði í raun ákveðið að næsta verkefni sem ég tæki mér fyrir hendur yrði eitthvað sem við hjónin myndum stofna sjálf og byggja upp. Það hafði þannig verið í pípunum í talsverðan tíma og kreppan breytti engu þar um,“ segir hann. Ragnar segir enn fremur að ástæða þess að hann valdi að stunda nám í frumkvöðlafræðum hafi að mestu leyti verið sú að ætlunin hafi alltaf verið að fara út í eigin rekstur.
Það er ekki allra að hætta í vinnu eftir þrítugt, flytjast milli landa með ungt barn og byrja upp á nýtt í öðru landi. Aðspurður hvort umskiptin hafi tekið á segir Ragnar svo vera. „Auðvitað var þetta svolítið erfitt í byrjun, en við höfðum bæði stefnt að því að fara í framhaldsnám erlendis í þó nokkurn tíma. Það var því alltaf einungis tímaspursmál hvenær við fyndum hentugan tímapunkt, og hann kom bara á þessum tíma.“
Ragnar segir að á þessum tíma hafi valið staðið á milli þess að hrökkva eða stökkva. „Við ákváðum að bíta á jaxlinn og skella okkur og sjáum svo sannarlega ekki eftir því,“ segir Ragnar hlæjandi, en þau voru á þeim tíma með eitt lítið barn og svo hefur annað bæst í hópinn á meðan fjölskyldan hefur verið búsett í Lundi ásamt elsta syninum sem flakkar á milli Íslands og Svíþjóðar. „Það hefur gengið ofsalega vel með börnin,“ segir Ragnar. „Hér er mikið og sterkt Íslendingasamfélag og í því felst mikill stuðningur. Hér er mikið um íslenska lækna og námsmenn og þetta samfélag stendur þétt saman,“ segir Ragnar og bætir því við að gjarnan sé sagt að það að búa í Lundi líkist því frekar að búa uppi í sveit á Íslandi en erlendis, svo mikið sé um Íslendinga á svæðinu.
„Við eigum líka góða vini að sem hafa alltaf verið reiðubúnir að aðstoða okkur og styðja við stjórn fyrirtækisins,“ segir Ragnar.
Hjónin eru þó dugleg að breyta til, og flutningar til Barcelona eru inni í myndinni, en þau hafa verið á leiðinni þangað í nokkur ár að sögn Ragnars. „Við gerðum ákveðna tilraun í vor og keyrðum frá Lundi til Barcelona rúma tvö þúsund kílómetra og dvöldumst í Barcelonaborg í mánuð með fjölskylduna. Þá voru allir þrír krakkarnir í heimanámi og við Sesselía unnum þaðan.“ Að sögn Ragnars heppnaðist dvölin vel og aldrei að vita nema á henni verði framhald.
Red Apple Apartments er leigumiðlun með fullbúnar íbúðir og er fyrirtækið milliður milli íbúðareigenda um gervalla Evrópu og leigjenda. Mikil áhersla er lögð á gæði íbúðanna. „Við sendum út kannanir til allra þeirra sem hafa gist í íbúðum á okkar vegum og þannig votta gestirnir í raun íbúðirnar. Ef eitthvað er svo ekki í lagi þá er íbúðin skilyrðislaust tekin af skrá. Með þessum hætti aukast í sífellu gæði þeirra íbúða sem við bjóðum upp á og ánægja viðskiptavina eykst,“ segir Ragnar. Aðhaldið hefur skilað sér í því að meðaleinkunn íbúðanna er 9 af 10 mögulegum, sem Ragnar segir til vitnis um mikla vinnu og eftirlit með íbúðunum. „Fólk er mjög ánægt með þjónustuna og kemur aftur. Okkar sterkasti markaður er á Norðurlöndum og við sjáum að fyrirtæki koma aftur og aftur. Meðal annars eigum við viðskipti við marga af stærstu bönkunum, ráðgjafafyrirtæki og símafyrirtækin Nokia og Eriksson. Þau senda starfsmenn út um hvippinn og hvappinn, til Helsinki eina vikuna og til Rómar þá næstu og þá er hentugt og þægilegt fyrir þá að geta alltaf leitað til sama aðila.“
Red Apple Apartments leigir líka út íbúðir hér á landi. „Við erum með helling af íbúðum á Íslandi, meðal annars í Reykjavík, á Akureyri og Ísafirði og á Selfossi. Þangað fara viðskiptavinir frá öllum heimshornum og það er svipaður viðskiptavinahópur sem fer til Íslands og hinna norrænu landanna og sunnar í álfuna.“ Hann segir kreppuna þó hafa markað ákveðin skil í þessu samhengi. „Með hruninu 2008 breyttist þetta töluvert. Heimsóknir eru orðnar ofsalega árstíðabundnar og í raun er viðskiptatímabilið á Íslandi bara frá maí og til september. Að vísu gengur sumarið mjög vel, það er mikil ásókn og auknar flugferðir til og frá landinu svara eftirspurn. En áður, þegar viðskiptalífið á Íslandi var í miklum blóma, komu menn þangað allt árið um kring, eins og er í flestum öðrum borgum í dag.“
Ragnar fagnar vexti í ferðaþjónustu hér á landi, en bendir á breytingu á þeim ferðamannahóp sem hingað sækir. „Heimsóknum til Íslands fjölgar ár frá ári en með tilkomu lággjaldaflugfélaga hefur þeim ferðamönnum fjölgað sem hafa takmörkuð fjárráð eða kjósa að halda eyðslunni í lágmarki meðan á dvöl stendur. Þannig er ekki samasemmerki milli fjölgunar ferðamanna og gróða í ferðaþjónustu.“
Aðspurður hverjir stærstu viðskiptavinahóparnir séu segir Ragnar það nokkurn veginn tvískipt. „Það skiptist jafnt á milli fólks í viðskiptaerindum annars vegar og fjölskyldna í fríi hins vegar,“ en Ragnar og Sesselía eiga viðskipti við mörg fyrirtæki sem senda starfsmenn sína í verkefni erlendis í 2-6 mánuði og notast þá yfirleitt við íbúðir á vegum Red Apple Apartments. „Okkur finnst mikilvægt að íbúðirnar séu vel búnar, rúmgóðar og fjölskylduvænar þannig að menn sem dvelja í íbúðunum til að sinna störfum fjarri heimalandinu hafi kost á að bjóða fjölskyldum sínum í heimsókn þannig að þær geti dvalið í íbúðunum. Einnig leggjum við upp úr því að eldunaraðstaða sé fyrir hendi svo að gestirnir hafi þann möguleika að elda saman heima við í stað þess að borða allar máltíðir á veitingastöðum,“ segir Ragnar, en handklæði og rúmföt fylgja íbúðunum. „Ef þú ferð með fjölskylduna í frí er mikill kostur að geta verið í íbúð frekar en hótelherbergi, þá býðst sá möguleiki að hafa aukaherbergi fyrir börnin.“
Íbúðir fyrirtækisins eru glæsilegar á að líta en að sögn Ragnars er mikil áhersla lögð á gæði og aðstöðu. „Ef við berum þetta saman við hótel eru íbúðirnar líklega 3-4 stjörnu hvað varðar gæði. Hins vegar verður að líta til þess að það er mun ódýrara að dvelja í íbúð en á hóteli.“ Hann segir mikinn mun liggja í þeirri upplifun að dvelja á hóteli og að dvelja í íbúð. „Þetta gefur aðra sýn og ólíka reynslu af borginni, enda eru íbúðirnar inni í íbúðahverfum og gestirnir upplifa borgina frá sjónarhorni þeirra sem þar búa. Það er sérlega hentugt fyrir þá gesti okkar sem ferðast í viðskiptaerindum að geta látið sér líða eins og heima hjá sér þótt þeir séu staddir erlendis. Liður í því er að geta eldað sjálfur eins og þú sért í heimahúsi frekar en á hótelherbergi.“ Einkunnarorð fyrirtækisins eru ,,Feels just like home“ og íbúðaúrvalið endurspeglar það, bæði hvað varðar aðstöðu og staðsetningu.„Við viljum meina að við séum ekki í beinni samkeppni við hótelgeirann því við bjóðum upp á annan kost,“ segir Ragnar.
Aðspurður hvort árstíðasveiflur séu í viðskiptum fyrritækisins segir Ragnar svo vera. „Þegar kemur að fjölda bókana er sumarið tvímælalaust annasamasti tíminn. Þá er vanalegra að fólk gisti í skemmri tíma, meðaldvöl er um fimm nætur á þeim árstíma,“ segir Ragnar en almennt gista leigjendur allt frá nokkrum nóttum upp í eitt ár, að sögn Ragnars. „Á haustin og vorin er meðaldvöl svo talsvert lengri. Fólk getur þannig leigt út íbúðirnar sínar yfir sumartímann til skemmri tíma og á haustin taka við lengri leigur.“
Starfsemin teygir anga sína út fyrir mörk Evrópu. „Við erum með skrifstofur bæði í Lundi og í Pakistan, og hér starfa 10 manns, en við höfum 3 starfsmenn í Pakistan sem fyrst og fremst vinna að forritun.“ Alls starfa því 13 manns hjá fyrirtækinu, sem er í sífelldum vexti. Aðspurður hvernig það kom til að opnað var útibú í Pakistan segir hann það til komið vegna starfsmanns sem ættaður er þaðan. „Við réðum til okkar forritara hér í Svíþjóð sem er Pakistani og þegar við hugðumst bæta við okkur öðrum forritara stakk hann upp á að við prófuðum þetta fyrirkomulag. Hann talar urdu (pakistönsku) og hefur sambönd innan landsins þannig að við ákváðum að fylgja hans ráðum, opna skrifstofu í Pakistan og bæta við okkur fólki þar. Það hefur gengið mjög vel,“ segir Ragnar.
Mikil samkeppni ríkir á íbúðaleigumarkaði og Ragnar segir mikilvægt að skapa sér sérstöðu í bransanum. „Þetta er fyrst og fremst spurning um að gera hlutina vel og að halda vel utan um viðskiptavini sína.“
Hann segir að mikla þrautseigju þurfi til að byggja upp fyrirtæki sem þetta. „Þetta hefur verið sólarhringsvinna síðustu ár, en skemmtileg engu að síður. Það eru forréttindi að fá að vinna í jákvæðu umhverfi þar sem ríkir gleði og allir eru hamingjusamir og sáttir. Hugmyndin er í grunninn skemmtileg því verið er að nýta þann húsakost sem er til staðar í borgunum. Við erum ekki að reisa ný hótel með tilheyrandi kostnaði,“ segir Ragnar og bætir við að að því leyti til sé reksturinn umhverfisvænn.“
Íbúðareigendurnir sem Ragnar og Sesselía sinna milligöngu fyrir hagnast líka vel á leigunni. „Við sköpum heilmiklar tekjur fyrir fólk enda finnur maður hér í Evrópu að fólk hefur þörf fyrir auknar tekjur og margir nýta leiguna sem leið til að drýgja launin sín. Í krísunni í Suður-Evrópu er til að mynda mikill fjöldi fólks sem vill leigja íbúðirnar sínar,“ segir Ragnar.
Fjölskyldan hefur nú búið í Lundi á Skáni síðustu 6 ár og líkar vel. Aðspurður hvað framtíðin beri í skauti sér segir Ragnar að stefnan sé að halda áfram á sömu braut. „Aðalatriðið hjá okkur er að gera þetta áfram vel og það er nú þess vegna sem við höfum ekki enn farið út fyrir mörk Evrópu. Við viljum halda fókus og stjórn yfir fyrirtækinu og gæðum þeirrar þjónustu sem við bjóðum upp á.“ Aðspurður hvort flutningar til Íslands séu á kortunum í framtíðinni segir Ragnar það ólíklegt. „Við ætluðum alltaf að dvelja hér í eitt ár og flytja svo til Barcelona, en við erum ekki enn farin þangað. Það er í það minnsta ekki á planinu í nánustu framtíð að flytja til Íslands, þó að hugurinn stefni alltaf heim.“
Vefsíðu Red Apple Apartments má finna hér.