Agnes hóf störf á Biskupsstofu

Agnes M. Sigurðarsdóttir biskup og Edda Möller framkvæmdastjóri.
Agnes M. Sigurðarsdóttir biskup og Edda Möller framkvæmdastjóri.

Biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, hóf formlega störf í morgun á Biskupsstofu. Dagurinn hófst á helgistund með starfsfólki og morgunkaffi áður en gengið var til starfa.

Agnes biskup las orð Jesaja spámanns úr 12. kafla, sem hafði talað til hennar þennan morgun:

Sjá, Guð er hjálp mín,
ég er öruggur og óttast ekki.
Því að Drottinn er vörn mín og lofsöngur,
hann kom mér til hjálpar.
Þér munuð með fögnuði vatni ausa
úr lindum hjálpræðisins.

Meðal þeirra sem heilsuðu nýjum biskupi var Edda Möller, framkvæmdastjóri Skálholtsútgáfunnar og Kirkjuhússins, en leiðir þeirra hafa áður legið saman, í kórastarfi og barnastarfi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert