Sala áfengis jókst um 2,9% í lítrum talið fyrstu sex mánuði ársins samanborið við árið á undan. Aukning er í sölu rauðvíns um 1,8% og hvítvíns um 6,4%. Að auki hefur sala á ávaxtavínum aukist um tæp 50% það sem af er ári.
Aftur á móti hefur nokkuð dregið úr sölu á blönduðum drykkjum, ókrydduðu brennivíni og vodka.
Sala júnímánaðar er 7,9% meiri í lítrum talið en á sama tíma í fyrra. Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri Vínbúðanna, telur ólíklegt að rekja megi söluaukninguna til EM í fótbolta eða fjölda sólskinsstunda í höfuðborginni.
Líklega er skýringin sú að í júnímánuði í fyrra voru fjórar helgar, þ.e. föstudagar og laugardagar, en í ár voru helgarnar fimm. En langflestir viðskiptavinir koma í verslanir Vínbúðanna á þeim dögum og sést það greinilega ef sala síðustu viku er skoðuð.
En þá viku voru alls 440 þúsund lítrar seldir, þar af 259 þúsund lítrar á föstudag og laugardag eða tæp 60%.