Bílvelta á Laugarvatnsvegi

Tilkynnt var um bílveltu um klukkan tíu í gærkvöldi í umdæmi lögreglunnar á Selfossi. Slysið átti sér stað á nákvæmlega sama stað og önnur bílvelta síðastliðinn laugardag, eða á Laugarvatnsvegi á milli Laugarvatns og Úthlíðar. 

Í því slysi valt bifreið með japönskum ferðamönnum og sluppu þeir að mestu ómeiddir.

Í þessu tilviki var einnig um að ræða erlenda ferðamenn. Þrír voru í bifreiðinni og var einn fluttur á sjúkrahús en hann kvartaði undan eymslum í hálsi. Frekari upplýsingar um líðan hans liggja ekki fyrir.

Tildrög slyssins eru ókunn og vinnur lögregla að rannsókn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert