Búast má við minniháttar umferðartöfum

Úr safni.
Úr safni. mbl.is/Ernir

Malbikunarframkvæmdir eru fyrirhugaðar á Hringbraut og Miklubraut í Reykjavík á morgun, föstudaginn 6. júlí. Um er að ræða kaflann til austurs frá Suðurgötu að Lönguhlíð, en áætlað er að verkið hefjist um níuleytið í fyrramálið og að því verði lokið fyrir klukkan fjögur síðdegis.

Unnið verður á einni akrein í einu og eru vegfarendur beðnir um að aka varlega um vinnusvæðið. Vegna framkvæmdanna á þessum vegkafla má búast við minniháttar umferðartöfum, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert