Viðbragðsteymi vegna landgöngu hvítabjarna var kallað saman í morgun til að fara yfir stöðu mála vegna tilkynningar um hugsanlega landgöngu hvítabjarnar í gær. Fram kemur í tilkynningu að mikilvægt sé að ef fólk verði vart við dýrið skuli hringja í 112 og nálgast ekki dýrið.
Viðbragðsteymið var skipað af umhverfisráðherra árið 2012 og í því sitja fulltrúar Landhelgisgæslunnar, Ríkislögreglustjóra, Matvælastofnunar og Umhverfisstofnunar. Hlutverk teymisins er m.a. að samræma viðbrögð þessara aðila.
Fram kemur að leit hafi verið hætt í gærkvöldi um kl. 23 en var framhaldið kl. 10 í morgun og verður leitað áfram í dag. Lögreglan á Blönduósi stýrir leit og aðgerðum á vettvangi.
„Árið 2008 skipaði umhverfisráðherra starfshóp í kjölfar landgöngu tveggja hvítabjarna sama ár. Í skýrslu starfshópsins var farið yfir viðbrögð vegna hugsanlegrar landgöngu hvítabjarna og lagt til að þeir hvítabirnir sem ganga á land verði felldir. Fyrir því séu þrenns konar rök, í fyrsta lagi öryggissjónarmið, í öðru lagi stofnstærðarsjónarmið og í þriðja lagi kostnaður við föngunaraðgerðir. Hvítabirnir eru stærstu landrándýr jarðar, stórhættulegir og óútreiknanlegir. Engu máli skipti fyrir stofn hvítabjarna þótt nokkur dýr séu felld hér á landi. Heimsstofn hvítabjarna telur um 22.000 dýr og stofn austur-grænlenska stofnsins er að lágmarki 2000 dýr. Kostnaður við föngun og flutning hvers dýrs er um 11,5 m.kr þar við bætist 6,5 m.kr í stofnkostnað og um 2 m.kr í árlegan rekstrarkostnað vegna þjálfunar og búnaðar. Í skýrslunni eru einnig efasemdir um að færa þá hvítabirni sem hingað koma í dýragarð.
Til þess að reyna föngun og flutning þarf samþykki móttökuríkis, þjálfaðan aðgerðahóp, sértækan búnað (s.s. búr, deyfilyf og mótefni), aðstöðu til þess að vista dýrið áður en það er flutt, fjármagn og önnur atriði, s.s. hvað varðar flutning á dýrinu. Það er mat teymisins að öllum fyrrgreindum skilyrðum þurfi að vera fullnægt til að hægt sé að reyna föngun án þess að leggja menn í hættu, en svo sé ekki. Það er því einróma álit viðbragðsteymisins að ekki sé hægt að reyna föngun og flutning að svo stöddu. Viðbragðsteymið vinnur nú að því að útfæra viðbrögð við landgöngu hvítabjarna sem lagðar verða fyrir í opnu umsagnarferli áður en þær fara til staðfestingar ráðherra.
Hvítabirnir eru stærstu landrándýr jarðar, stórhættulegir og óútreiknanlegir. Talið er að heimsstofn hvítabjarna telji 22.000 dýr í dag. Flesta hvítabirni er að finna í Kanada. Hvítabirnir eru á lista IUCN (Alþjóðanáttúruverndarsamtökin) yfir dýr í yfirvofandi hættu. Þrátt fyrir þetta styður hvítabjarnarráð IUCN sjálfbæra nýtingu á öllum 19 stofnum hvítabjarna. Um 800 dýr eru felld árlega,“ segir í tilkynningunni.