Tillaga sem alþingismennirnir Róbert Marshall og Björn Valur Gíslason fluttu um þátttökurétt Palestínumanna í ÖSE þinginu var felld með sex atkvæða meirihluta á ársþingi ÖSE þingsins sem haldið er í Mónakó nú um helgina.
Mikil andstaða var á meðal þingmanna Bandaríkjamanna og Ítala á fundinum en hún naut stuðnings frá fulltrúum Norðurlandaþjóðanna auk Frakklands og Bretlands. Tillagan fól í sér að heimastjórn Palestínu hefði verið veittur réttur til að sitja fundi Öryggis og samvinnustofnunnar Evrópu án þess þó að hafa þar tillögu- eða atkvæðisrétt.
Sex aðrar Miðjarðarhafsþjóðir hafa þennan rétt, þar á meðal Ísrael en fulltrúar þeirra beittu sér einnig gegn samþykkt tillögunnar. 22 þingmenn samþykktu tillöguna og 28 voru á móti. Heimastjórn Palestínumanna hefur þegar verið veittur þátttökuréttur í fundum Evrópuráðsins, alþjóðlegu þingmannasamtakanna og Unesco.