Mikið af fíkniefnum í umferð

5.000-6.000 manns voru á útihátíðinni á Gaddstaðaflötum um helgina.
5.000-6.000 manns voru á útihátíðinni á Gaddstaðaflötum um helgina.

Lögreglan á Hvolsvelli segir sláandi hvað mikið af fíkniefnum virðist vera í umferð. „Mikið af ungu fólki er að byrja í neyslu fíkniefna og voru margir að fá sitt fyrsta mál á sig,“ segir í tilkynningu lögreglunnar, en 55 fíkniefnamál komu upp útihátíðinni á Gaddstaðaflötum um helgina.

Fíkniefnahundur var á svæðinu og ásamt öflugum lögreglumönnum sem voru við eftirlit alla hátíðina. Samtals voru 192 mál bókuð hjá lögreglunni á Hvolsvelli þessa vikuna. 


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert