Óheimilt samneyti mismunandi tómata

Tómatar
Tómatar mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

„Þetta er lögbrot og ég geri kröfu til þess að heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga fylgi því eftir að ekki sé verið að svindla á þessu,“ segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, um kvartanir þess efnis að verslanir setji erlenda tómata í kassa merkta Sölufélagi garðyrkjumanna og blandi jafnvel saman innlendu og erlendu grænmeti sem selt er óplastað.

Georg Ottóssyni á garðyrkjustöðinni Jörfa sagði í Morgunblaðinu á laugardag að Jörfi sendi frá sér  þrjú tonn á viku af papriku, 500 kassa. „Þeim er pakkað inn tveimur saman svo landinn geti greint að þetta er örugglega íslenskt. Ef þær væru sendar í lausu myndi kaupmaðurinn blanda öllu saman og búa til eitthvað verð og enginn vissi hvað hann væri að kaupa,“ segir Georg.

Í Jörfa ræktar Georg tómata og paprikur í 4.500 fermetra gróðurhúsum og stundar jafnframt útirækt á um 15 hekturum þar sem hann er með spergilkál, blómkál, kínakál og hvítkál. Ásamt því að reka Jörfa er hann með Flúðasveppi og er formaður Sölufélags garðyrkjumanna. Georg segir hljóðið í garðyrkjubændum vera gott.

„Það er aukning í grænmetisneyslu og á meðan Íslendingar vilja frekar íslenskt en innflutt erum við mjög ánægðir. Við erum að glíma svolítið við innflutninginn og það sem mér finnst erfiðast er að neytandinn veit ekki alltaf hvort hann er að kaupa íslenskt eða innflutt. Það er kannski verið að selja innflutta tómata í kössum frá Sölufélagi garðyrkjumanna. Ég held að þeir kaupmenn sem eru að gera slíka hluti verði fyrir barðinu á neytandanum síðar. Það er ekki nýtt undir sólinni að menn séu að falsa vörumerki en það á ekki að vera neitt vafamál í þessu fyrir neytandann.“

Tómatar
Tómatar mbl.is/Gúna
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert