Mennta- og menningarmálaráðherra hefur að tillögu Húsafriðunarnefndar friðað ýmis mannvirki sem tilheyra Elliðaárvirkjun. Húsafriðunarnefnd telur að mannvirkin séu öll sérlega góður vitnisburður um framfarahug þjóðarinnar í upphafi tuttugustu aldar og teljist því hafa mjög mikið gildi í menningar- og byggingasögu Reykjavíkur.
Um er að ræða eftirfarandi mannvirki:
- Rafstöðvarhúsið í Elliðaárdal (1920-21), Elliðavatnsstíflu (1924-28), Árbæjarstíflu (1920-29) og þrýstivatnspípu (lögð 1978 í stað pípu sem lögð var árið 1920).
- Stöðvarstjórahús Elliðaárvirkjunar í Elliðaárdal (1921).
- Smiðja/fjós í Elliðaárdal (1921).
- Hlaða í Elliðaárdal (1932-33).
- Straumskiptistöð/aðveitustöð í Elliðaárdal (reist 1937 eftir teikningum Sigurðar Guðmundssonar arkitekts, án síðari tíma viðbygginga).
- Spennistöð við Bókhlöðustíg 2A.
- Spennistöð við Vesturgötu 2.
- Spennistöð við Klapparstíg 7E.