„Fá mann til að gleyma brælunni“

Guðmundur í Nesi RE 13 frystitogari Brims.
Guðmundur í Nesi RE 13 frystitogari Brims. mbl.is


„Svona túrar fá mann til að gleyma brælunni,“ segir  Kristján H. Guðmundsson skipstjóri á Guðmundi í Nesi sem kom með verðmætasta farm sem íslenskt fiskiskip hefur fengið í einni ferð til hafnar. „Nú er kvótinn búinn og það er verst að geta ekki fengið að veiða meira. Það er nóg af grálúðu í sjónum,“ segir Kristján.

Skipið var 32 daga á sjó og reyndist aflinn 580 tonn í heild, þar af er um að ræða um 490 tonn af grálúðu, en afgangurinn er karfi. Heildarverðmæti aflans er um 450 milljónir króna.    

„Veðrið var frábært allan tímann og það hafði sitt að segja. Við áttum þess vegna von á því að fiskiríið myndi dragast saman þegar leið á túrinn en það gerðist aldrei. Við gátum veitt nánast allan tímann,“ segir Kristján. Skipið var á veiðum á Hampiðjutorginu undan Vestfjörðum.

Aðspurður hvernig tilfinning það væri að koma með slík verðmæti í land segir Kristján það vera eins og hvern annan túr. ,,Maður var kannski ekki að spá neitt sérstaklega í því. En þetta er vissulega gaman eftir á," segir Kristján.

Löndun úr togaranum stendur yfir og er útlit fyrir að næsta áhöfn komist ekki af stað í kvöld eins og til stóð sökum þess hve tímafrekt er að landa aflanum. Næsta áhöfn mun einnig njóta góðs af góðum afla þar sem áhafnirnar tvær skipta á milli sín launum af hverjum túr.

Samkvæmt upplýsingum frá Brimi hf sem gerir út Guðmund í Nesi er allur farmurinn þegar seldur. Mikil eftirspurn er eftir grálúðu á mörkuðum.

,,Okkur finnst við geta veitt meira því það er næg grálúða í sjónum en sérfræðingarnir segja annað," segir Kristján.

Kristján H. Guðmundsson skipstjóri á Guðmundi í Nesi.
Kristján H. Guðmundsson skipstjóri á Guðmundi í Nesi. mbl.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert