Skapar 150 störf

Makríll
Makríll Af vef HB Granda

Vinnslan á síld og makríl er komin í gang af fullum krafti á Vopnafirði. Um 2.700 tonn af fiski hafa borist að landi frá því að veiðar hófust um sl. mánaðamót og nú vinna hátt í 150 manns við vinnslu á aflanum í uppsjávarfrystihúsi HB Granda á staðnum.

Öll þrjú uppsjávarveiðiskip HB Granda hafa komið tvívegis að landi með afla á vertíðinni og ekki er nema um átta tíma sigling á miðin úti fyrir Austfjörðum, samkvæmt vef HB Granda.

Að sögn Magnúsar Róbertssonar, vinnslustjóra HB Granda, hefur aflinn verið ferskur en nokkuð er um átu í fiskinum um þessar mundir. Hann segir að fram að þessu hafi hlutfall síldar í aflanum verið um 60% en reynt er að haga veiðum þannig að meira veiðist af síld en makríl nú í byrjun vertíðarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert